Lengi hefur verið talað um að koma upp útisundlaug við Sundhöllina við Barónsstíg, nokkrar teikningar og hugmyndir hafa komið fram og þeim verið haldið á lofti , en málið virðist alltaf sofna. Útisundlaug og viðeigandi þjónusta yrði sannkölluð heilsulind fyrir íbúa miðborgarinnar og gesti hennar og sparaði þeim akstur í úthverfin og væri þannig að sama skapi umhverfisvæn.
Það er mikilvægt fyrir líkamlega og andlega heilsu íbúa miðbæjarins og aðdráttarafl hverfisins í heild sinni að af byggingu útisundlaugar við Barónsstíginn verði sem fyrst, svo íbúar og gestir í hverfinu þurfi ekki að keyra í önnur hverfi til að sækja í slíkar heilsulindir
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation