Göngubrú yfir Kringlumýrarbraut á móts við Hamrahlíð.
Mikil umferð gangandi vegfarenda er milli Hlíðahverfisins og Kringlunnar yfir Kringlumýrarbraut á móts við Hamrahlíð og Suðurver. Þar er einnig mjög mikil bílaumferð. Það kemur nokkuð reglulega fyrir að bílar hreinlega taka ekki eftir gönguljósunum og keyra yfir á rauðu ljósi. Þetta er mjög hættulegur staður og því væri mikill fengur í göngubrú á þessum stað.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation