Þarna er vanhirtur reitur sem borgin mun eiga eða sá um til skamms tíma. Snyrta mætti reitinn á ódýran hátt með plöntum eða litlum skúlptúr. Starfsmaður borgar sagði í sumar að þetta væri einkalóð. Fyrir alllöngu keypti ég rönd af þessari lóð af borginni vegna lagfæringa á aðgengi að mínu húsi, Nýlendugötu 43, þannig að röndin bættist við lóð Nýlendugötu 45. Hvergi hefur komið fram að lóðin í heild hafi verið seld. Við erum farin að kalla hana Dag(s)sláttu Drottins.
Þarna er einn af örfáum grænum blettum á þessu svæði sem allt er á kafi í malbiki og órækt. Lítið mál að bæta úr.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation