Setja ætti stóra hundagirðingu á túnið hjá Vesturbæjarlaug ( V- eða NV- megin).
Það er flottur róluvöllur þarna við hliðina á. Í dag hlaupa hundarnir lausir út um allt tún, villast stundum inn á rólóið og jafnvel út á Hofsvallagötu. Þar sem þetta er vinsæll staður hjá hundaeigendum þá er tilvalið og nauðsynlegt að setja þarna rúmgóða hundagirðingu með tilheyrandi ruslafötum.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation