Fjarlægja grindverk neðst í nýrri sleðabrekku neðan við Grímsbæ áður en börn slasa sig á henni. Einnig mætti gera brekkuna brattari og búa til flatan kafla neðst svo börn hafi tækifæri til að stoppa.
Síðastliðið sumar var gerð ný sleðabrekka neðan við Grímsbæ. Neðst í brekkunni var síðan sett rammgert grindverk. Það er ekkert pláss fyrir krakkana til að stoppa áður en þau lenda á grindverkinu. Mjög mikilvægt er að fjarlægja þetta grindverk áður en slys hlýst af. Einnig mætti búa til flatan kafla neðst og í leiðinni gera brekkuna brattari.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation